Saturday, April 12, 2003

Sýnishorn af hugsunum mínum (röggu) akkárat núna:
Það verður ekki ofsögum sagt að það er allt að fara í hundana.Páskarnir á næsta leiti,og ég á enn ekkert páskaegg.Hinsvegar á ég fullan poka á M&M og þetta er VONT.Skiljiði það? VONT! Í fyrsta lagi er þetta bragðlaust og í öðru lagi smakkast sumar af þessum kúlum eins og plast.Samt held ég áfram að bryðja þetta.hvernig stendur á þessu?(teygi mig í annað M&M í þessum skrifuðum orðum).Svona djöfullegt fyrirbæri,vont nammi (eins og það sé ekki nógu slæmt) sem maður heldur áfram að borða. Og þó, ekki borða heldur BRYÐJA.Það er nefnilega (ojjj!þessi M&M var VONDUR!) afsakið þetta iinnskot en þetta var bókstaflega ógeðslegt.Kannski höfum við fengið gallaðan pakka.En svo ég haldi nú áfram,þá er SVO GAMAN að bryðja þetta!(sting upp í mig öðrum og smjatta græðgislega áhonum.Þarna var ég nú heppin,hann var bragðlaus þessi.Svona leikur nú lánið við mann)
En svo ég snúi mér nú að öðru og vonandi skemmtilegra málefni.(vonandi)ég er að pæla í að kveikja í herberginu mínu.Ekki af því að mér sé svona kalt(onei,svo gott er það nú ekki!) heldur vegna þess að það er OF MIKIÐ AF SKÓLADÓTI ÞAR!!! URRRR!!!!!!!!!!!
Veit samt ekki hvort ég læt verða af þessu,bæði það að mér þykir afar vænt um herbergið mitt og fengi líklegast ekki annað (nema náttúrulega bólstrað einangrunarherbergi á stofnun fyrir afbrotaunglinga með geðræn vandamál) og það gæti þarað auki haft ýmsar hliðarverkanir.
En nú tel OOOOJJJJ!!!!!!!!!! VONT!!!!!!!!!!(afsakið,þetta var M&M) uhummm,nú tel ég nóg komið af svo góðu og bið évg ykkur vel að lifa.

Friday, April 11, 2003

Klara: Ég er með pælingu. Þeir sem ekki þekkja mig gætu orðið nokkuð hissa á þessum pælingum mínum en flestir ættu að vita betur, t.d. Anna Magga sem upplifði það í eigin persónu þegar ég vildi óð og uppvæg fræða vinnufélaga mína í unglingavinnunni um erfðafræðilega uppbyggingu múlasna (hann er afkvæmi hests og asna, þ.e.a.s. hestur og asni geta eignast afkvæmisaman en afkvæmið getur hins vegar ekki eignast afkvæmi. Sem er eins gott því þeir eru ferlega asnalegir greyin ~ bara sona smá fróðleiksmoli fyrir ykkur sem vissuð það ekki)!!!! Ok, pæinigin er semsagt:
Hvar á þróunarferli lífvera kom fram það helbera rugl að verpa eggjum???? Í alvöru. Samkvæmt Scobie voru fyrstu lífverurnar einhverskonar einfrumungar sem svo þróuðust. En hvenar í ósköpunum datt þeim í hug: ,,Hei!! Í stað þess að skipta okkur eins og við höfum gert hingað til, væri ekki sniðugast ef við kæmum krakkanum fyrir í KALKSKURN og kúkum henni svo!!!" Og svo þurfum við að liggja á þessu í LAAAANGAN tíma og ekki standa upp því þá drepst afstyrmið! Svo er það fyrsta sem króginn þarf að gera á æviferli sínu er að hjakka sig í gegnum skurnina og troða sér út, oftast án hjálpar frá mömmunni! Og fær það heldur enga innilokunarkennd?
Ókei, bara smá steiktar pælingar, bið ykkur að afsaka......

Klara: Jesssssss!!!!!!!!

Klara:
Smá prufa, bara að tékka hvort þetta tekur íslensku stafina.....

Thursday, April 10, 2003

Vinnureglur tessarar sidu:
1. Inni a tessari sidu leyfist ekkert nema hreint bull og hugrenningar sem ekki eru fyrirfram akvednar, helst a heimspekilegum notum.
2.Sameiginlegt takmark okkar var, er, og mun alltaf vera ad finna upp skallalyf, stodva utbreidslu skrugguuglna og lumbra a hinum myrka herra, (ja tu veist hver tu ert!)
3. Engar neikvaedar paelingar hingad takk!!!!
4. Vid firrum okkur allri abyrgd ef ykkur finnst tetta ekki fyndid og beinlinis leidnilegt, tvi okkur er daudans alvara med tessu
5. Her gilda heimsyfirrad eda daudi
Ekki fleiri i bili en eins og gildir um flesta ein(eda i okkar tilfelli tvi)raedisherra munu fleiri reglur an efa lita dagsins ljos
Vid aetlum ad vona ad tessir stafir komist i lag bradlega, tetta missir allan sinn kjarna og verdur fremur kraftlaust. Vid erum i raun mjog ognvekjandi

Klara og Ragga:
Kvoldid, kvoldid, kvoldid!
Tetta a ekki ad vera sona, tetta a alleg ad taka islenska stafin, en augljoslega eru eikkerjir duttlungar i kerfinu, tannig ad vid staulumst nefmaeltar ut ur tessu
Her sitjum vid nytvegnar og hreinar (vorum ad koma ur sundi) reidubunar til bloggs. Tetta var hugmynd sem kom upp i tessari orlagariku sundferd, sem innihelt m.a. tad undarlega athaefi ad skylmast med appelsinugulum armkutum tannig ad tid eigid ekki von a godu! Hvada tid???? AEtli eikker lesi tetta? Ykkur er betur ad gera tad, annars sendum vid skrugguuglur og kinverska tvottamenn a ykkur.