Hver er ástæðan fyrir fermingarveislum?
Af hverju í ósköpunum heldur fólk og sækir fermingarveislur? Ástæðan fyrir því að þær eru haldnar er vafalaust sú að krakkaskrattana langar í gjafir.Auk þess líta foreldrar og forráðamenn á það sem sjálfssagða kurteisi að bjóða fólki í svona samsæti.Og ástæðan fyrir því að fólk sækir þetta er ýmist skyldurækni eða aðrar persónulegar ástæður.
Ég fyrir mitt leyti mæti í fermingarveislur til að éta brauðtertur.Ég er sólgin í brauðtertur.Og í dag var mér einmitt boðið í fermingarveislu,og hugsaði ég mér því gott til glóðarinnar.En hvað mætir þá ekki augum vorum er komið var á staðinn? Marsípanterta!
Marsípan? Ég hata marsípan! Ég minnist í því sambandi ummæla minna um mína eigin fermingarveislu sem voru eitthvað á þessa leið: Ég sat þarna eins og dæmdur morðingi og át marsípan. Og hverslags orð er marsípan? Og svarið er: Ekki orð,heldur orðskrípi!
Prófið bara að skrifa þetta svona fimm sinnum,þetta er martröð. En svo ég haldi nú áfram.Þarsem mig langaði hreint ekki í marsípan fékk ég mér súkkulaðiköku.Þá fyrst er ég hafði sest niður og var að stinga upp í mig fyrsta bitanum áttaði ég mig á mistökum mínum.Ég hafði nefnilega nær ekkert étið í allan dag NEMA súkkulaði.Það gekk þá ekki lengra,og át ég ekki meira í þeirri veislu.
Mér til mikillar örvæntingar bíður mín önnur fermingarveisla á fimmtudaginn,og er ég strax farin að kvíða fyrir.En nú er ég farin,pabbi er farinn að efla til illinda við nágrannana.Ætla aðð reyna að afstýra stórslysi.
Ragga
Hugrenningasíða Kjánans og Jakthundsins
Komið hingað ef ykkur þyrstir í hreint og beint rugl
