Já,?annig er n? ?a?.Er komin me? br?nabelti?,gr??un t?kst me?? ?g?tum.Rugla?ist reyndar tvisvar ? fléttunum,en ?a? var bara teki? eftir ??ru skiptinu(enda var ?a? l?ka alvarleg villa) kumite gekk...ja,svona allt ? lagi (kumite fyrir gr??un er ekki ?a? sama og venjulegt kumite.Skipulag?ara) ég hef?i samt veri? betri ef ég hef?i veri? ? m?ti Mar?u. En ?? fyrst byrju?u vandr??in.?g ver? samt a? taka ?a? fram a? ?egar ég skrifa?i ?etta me? a?svifi? hérna s??ast datt mér ekki ? hug a? ?a? ?tti eftir a? r?tast.Enda lei? n? ekki beinl?nis yfir mig,ég s? bara ?sk?rt,fékk hellu fyrir eyrun og svima?i.?etta hefur eflaust liti? afskaplega aumingjalega ?t. ?g var v?st n?f?l, rétti upp hendina og p?pti (e?a mj?lma?i,var allavegana mj?g mj?r?ma) :hérna,mér l??ur ekki sem best,g?ti ég fengi? a? gera kata me? h?pnum ? eftir? Og j?,j?, ég m?tti ?a?.S??an var mér veitt ?fallahj?lp ? formi orkudrykkjar og s?kkula?is.(?keypis,karatef?lk er svo g??hjarta?)
Svo ger?i ég bara kata og ?a? nokku? vel.? rauninni ?a? eina sem ?g var virkilega ?n?g? me?.Eftir gr??un hoppa?i ég svo og haf?i ? frammi ?mis ?nnur stubbal?ti,fél?gum m?num til miklillar undrunar og hneykslunar.Svo ?n?g? var ég.Og J?hanna,ef ?? lest ?essar l?nur,ég meinti GLE?ILEGA p?ska ekki GL?SILEGA.
Hugrenningasíða Kjánans og Jakthundsins
Komið hingað ef ykkur þyrstir í hreint og beint rugl
Saturday, April 19, 2003
Friday, April 18, 2003
Hinn háleitasti og heimskasti allra háleitra og heimskra hálfvita heilsar hér hjartanlega upp á ykkur helvítis halakörtur! Hvað eru mörg H í því? Í talninguni skuluði ekki taka mark á þessu um halakörturnar.Þið eruð öll LANGT fyrir neðan halakörtur í þróunarferlinu! Já! Ég er að tala við þig! Þú einskisnýti ónytjungur og lydda!
HAHAHAHAHA!!!!!!!!!!!! Þetta fannst mér fyndið. Þið verðið að afsaka,ég hef í allan dag bisast við að horfast í augu við eigin heimsku,en hún er bara of mikil um sig til að minn heimski haus geti gert sér grein fyrir henni.Þetta hefur tekið mikið á,og því tók ég þessa útrás.
Á morgun er gráðun fyrir brúnabeltið,og ég hef ekki mætt í NEINA tíma.(velti mér um gólfið og ríf í hár mitt.Þessu fylgir mikill hávaði)
Og þetta voru tímar með sensei Kawasoe!!!!!!!!!!!!!! Tíma nr.eitt sleppti ég(enda er ég með afbrigðum löt) tíma nr.tvö missti ég af,ruglaðist á tímasetningum og í dag missti ég af strætó.
Nú ætla ég að hunskast burt frá tölvuskrattanum og í sturtu,æfa síðan usuri og mavasígiri (ekki alveg viss um stafsetninguna) og svo ætla ég að læra meira.
LÆRA MEIRA LÆRA MEIRA ÆLÆRA MEIRA LÆRA MEIRA LÆRA MEIRA LÆRA MEIRA LÆRA MEIRA LÆRA MEIRA LÆRA MEIRA LÆRA MEIRA.......................................(skyndilegt aðsvif mun koma í veg fyrir frekari skriftir alveg á næstunni)
Ragga
Thursday, April 17, 2003
Ragga:her vil eg koma a framfaeri nokkrum tilkynningum:
1)islensku stafirnir her eru haettir ad virka.Sa sem er abyrgur fyrir tessum andskota gefi sig tafarlaust fram!
2)Eg er erkidoni med meiru,og vil eg bidja alla ta sem ordid hafa fyrir einhverjum svivirdingum af minni halfu innilegrar afsokunar
3) Ordit KJARNYRT er akaflega kjarnyrt. Paelidi bara i tessu
4)eg hef stadid mig framunalega illa vid upplestur undir samraemda andskotann
5)tad er greinlega bara eitthvad med fri sem fer bara alveg med mig. Eg haetti ad hafa nokkur samskipti vid annad folk en nanustu aettingja og hef enga stjorn a tvi sem eg laet ut ur mer.Auk tess fer mig ad dreyma afar...litskruduga drauma svo ekki se meira sagt.
Tuesday, April 15, 2003
Klara: Ég hef ákveðið að leggja upp í stríð við alla þá sem skrifa "kæra dagbók". Bertbækurnar að vísu undanskildar, er ekki "kæra dagbók" í þeim? Þær eru skemmtilegar. En sko, eftir mikilsverðar rannsóknir hef ég komist að þeirri niðurstöðu að "kæra dagbók" er ekkert annað en ávísun á leiðinlega lesningu! Maður gæti allt eins sleppt því að skrifa "kæra dagbók" og skrifað einfaldlega: "kæri lesandi, ekkert dreif á daga mína í dag, ekki lesa áfram því þú átt sennilega eftir að sjá á eftir hverri sekúndu sem þú eyðir í að lesa þetta!" Hver skrifar eiginlega dagbók og ávarpar síðan ****** dagbókina og útskýrir fyrir henni hvað gerðist þann daginn??? Ég gerði það.....þegar ég var u.þ.b. 7 ára, ég var að finna gamlar dagbækur og þær eru leeeeeiðinlegar. Ekki einu sinni dúllulegar, bara leiðinlegar. Þær eru eikkað á þessa leið: Kæra dagbók! Í dag (gerði ég ekki rassgat) fór ég í sund með Hörpu og það var ægilega skemmtilegt, skal ég segja þér dagbók. Svo kom Linda í heimsókn. Það var gaman dagbók. Jæja dagbók, nú verð ég víst að kveðja þig og fara að sofa, góða nótt dagbók. Átti ég ekkert líf þegar ég var lítil????? Í alvöru!!!! Í fyrsta lagi var þetta svona dag eftir dag sem bendir til þess að ég hafi ekki haft neitt að gera. Ekki furða að ég hafi náð að byggja upp innilega steiktan orðaforða, ég hafði endalausan tíma til að plebbast. Í öðru lagi lítur út fyrir að dagbókin hafi verið besti vinur minn! Er ég bara sona steikt???
Monday, April 14, 2003
Klara: Til að ganga aðeins lengra með ógeðsmatarpælingu Röggu.... Ég er að borða hlaup. Það er hreinn viðbjóður. Ég er ekki að meina svona gott pakkahlaup oseisei nei, ég er að meina svona ógeð sem mar kaupir í duftformi, hrærir í vatni og lætur svo bíða í kæli í nokkrar klukkustundir. Og til að gera málið enn verra er þetta APPELSÍNUHLAUP. Þetta er svo mikill viðbjóður. Þetta bragðast eins og vatn, plast og sítrónusafi. Við hverja skeið af þessum viðbjóði verður það ógeðslegra og ógeðslegra og maður sér meira og meira eftir að hafa stungið skeiðinni upp í sig. Samt étur maður þetta, enda er þetta það eina sem er til fyrir utan seríos. Ég og mamma gerðum nefnilega þau reginmistök að treysta pabba fyrir innkaupunum þessa viku. Hann keypti EKKERT. Nema mjólk og seríos. Ekki einu sinni brauð. Ég veit ekki hvað í ******* hann var að gera í Júróprís í heilan klukkutíma því það er EKKERT til. Ég ætla ekkert að segja um að karlmenn geti ekki verslað því þá mun Benni koma með eitt af sínum femínistakommentum og auk þess geta flestir það eflaust en þessi tiltekni karlmaður myndi ekki þekkja innkaup þótt þau dönsuðu frammi fyrir honum í bananapilsi!
Lauksaga eftir Klöru Arnalds:
Herbergið mitt er í drasli! Miklu drasli!!! Svo miklu drasli reyndar að ég neyddist til að sofa í gestaherberginu í nótt sökum þess einfaldlega að ég komst ekki fyrir í rúminu mínu sökum drasls. Og ég er ekki að ýkja! Ég er nebblega að fara í gegnum skápana. Það er óeðlilegt hvað ég og mín fjölskylda hefur sankað að sér í gegnum tíðina. Sem dæmi má nefna ekkerjar ilmjurtir sem ég fékk í fermingargjöf fyrir tveim árum og hef aldrei notað sökum þess einfaldlega að þær lykta eins og skítur! Og mittistöskurnar, guð á himnum mittistöskurnar. Við eigum ábyggilega 3000 mittistöskur. Þetta er óeðlilegt! Sérstaklega þegar litið er til þess að fæstar af þessum töskum hef ég séð áður og þó hefur fjölskyldan sennilega átt þær í 30 ár af útlitinu að dæma. Og Mamma vill eiga hverja eina og einustu. Ég og Pabbi laumuðum nokkrum ofan í ruslapokann þegar hún sá ekki til og ég efast um að hún taki nokkurn tíma eftir því! En....laukur...laukur..... Við þessar tiltektir komum ég og Mamma auga á gleymt límband á dyrakarminum við skápinn minn. Í stuttu máli sagt rifum við límbandið af og þvoðum svo afgangslímið af með límeyði. En límeyðirinn var einstaklega illa lyktandi og lyktina leiddi inn í skápinn minn sem ég átti að fara að setja fötin mín í. Þannig að ég fylgdi gömlu þjóðráði og stakk skornum lauk inn í skápinn. Nú, 4 klukkustundum seinna er lyktin horfin, allt í stakasta lagi og laukurinn er allur úttútnaður vesalingurinn. Ég skil ekki hvað er að mér að skrifa svona langt blogg um ÞETTA en....ég hafði ekkert betra að gera.
